Fótbolti

Eiður vill fara aftur til Englands

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Eiður Smári fagnaði sigri með Barcelona í Meistaradeildinni á dögunum.
Eiður Smári fagnaði sigri með Barcelona í Meistaradeildinni á dögunum.
Eiður Guðjohnsen gerir ráð fyrir því að hann muni leika aftur í ensku úrvalsdeildinni þegar hann yfirgefur Barcelona.

„Þeir hafa verið að sýna mér áhuga í úrvalsdeildinni. Ég átti mjög góðar stundir í Englandi og ég þekki boltann þar mjög vel. Ég er vel þekktur í Englandi og naut mikillar velgengni þar," segir Eiður í samtali við breska blaðið Mirror. „Fólk veit hvaða reynslu ég hef og veit að ég verð fljótur að aðlagast boltanum," segir Eiður.

„Auðvitað yrði það mjög auðvelt að flytja til Englands. Ég tek sumarið í að skoða heildarmyndina og þegar allt kemur til alls verður ákvörðunin tekin á grundvelli boltans, einskis annars," segir Eiður í samtali við Mirror.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×