Fótbolti

Ronaldo nálgast nýtt met

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ronaldo hefur verið duglegur að setja hann.
Ronaldo hefur verið duglegur að setja hann. Nordic Photos / AFP

Cristiano Ronaldo getur skrifað nafn sitt í sögubækur Real Madrid ef hann skorar í leik liðsins gegn Villarreal í kvöld.

Enginn leikmaður í sögu félagsins hefur skorað í fyrstu fjórum deildarleikjum sínum í hvíta búningnum. Ronaldo hefur nú skorað í fyrstu þremur leikjum sínum í deildinni en Real Madrid mætir Villarreal á El Madrigal í kvöld.

Ronaldo skoraði tvívegis í sigri Real á Xerex um helgina og hafði áður skorað gegn Deportivo La Coruna og Espanyol.

Zlatan Ibrahimovic var þegar búinn að setja samskonar félagsmet hjá Barcelona með því að skora í öllum þremur deildarleikjum Barca til þessa á tímabilinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×