Fótbolti

Barcelona hefur áhuga á að kaupa Toni í janúar

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Luca Toni er ítalskur landsliðsmaður en hann hefur verið með Bayern frá 2007.
Luca Toni er ítalskur landsliðsmaður en hann hefur verið með Bayern frá 2007. Mynd/AFP

Ítalski framherjinn Luca Toni gæti verið á leiðinni til spænsku Evrópumeistaranna í Barcelona í janúarglugganum ef marka má fréttir frá Ítalíu. Pep Guardiola, þjálfari Barcelona, hefur áhuga á að bæta við framherja þrátt fyrir að Zlatan Ibrahimovic hafi skoraði í fyrstu tveimur deildarleikjum liðsins.

Luca Toni fær fá tækifæri þessa dagana hjá Louis Van Gaal þjálfara Bayern Munchen og það er búist við að hann myndi fagna því að komast á Nou Camp. Toni þarf líka að spila til þess að komast með ítalska landsliðinu á HM í Suður-Afríku.

Ítalska blaðið Tuttosport heldur því fram að Pep Guardiola vilji að Toni spili svipað hlutverk og Henrik Larsson gerði hjá Barcelona fyrir nokkrum árum. Guardiola vill víst nota Toni sem einskonar súper-varamann sem gæti komið sterkur inn af bekknum til að auka sóknarþunga liðsins þegar á þarf að halda.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×