Fótbolti

Alonso: Fínn mórall hjá Real

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Xabi Alonso.
Xabi Alonso.

Miðjumaðurinn Xabi Alonso segir að allt tal um einhverja krísu og slæman móral hjá Real Madrid sé tómt kjaftæði. Hann segir ekkert hafa breyst upp á síðkastið hjá liðinu.

„Það er sami góði andi í leikmannahópi okkar. Það eru góðar og slæmar vikur í fótbolta. Sem betur fer unnum við síðasta laugardag. Meistaradeildin er svo önnur keppni," sagði Alonso en Real mætir Milan í kvöld í Meistaradeildinni.

„Við verðum að vera jákvæðir og spila okkar besta bolta gegn Milan ef við ætlum okkur í næstu umferð."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×