Fótbolti

Forseti Atletico Madrid neitar að Aguero sé á förum

Ómar Þorgeirsson skrifar
Sergio Aguero.
Sergio Aguero. Nordic photos/AFP

Forsetinn Enrique Cerezo hjá Atletico Madrid hefur vísað á bug sögusögnum þess efnis að Chelsea sé nálægt því að krækja í framherjann Sergio Aguero og ítrekar að leikmaðurinn sé einfaldlega ekki til sölu.

Augero hafi því ferðast með Madridarfélaginu til Aþenu þar sem það mætir Panathinaikos í undankeppni Meistaradeildarinnar annað kvöld.

„Það sem stendur í blöðunum er bara rangt. Sergio ferðaðist með okkur til Aþenu og mun spila þennnan leik.

Okkur hefur heldur ekki borst kauptilboð frá Chelsea og ég veit ekki hvað ég þarf að endurtaka oft að umræddur leikmaður er ekki til sölu og verður áfram í herbúðum Atletico Madrid," segir Cerzo á blaðamannafundi í dag.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×