Fótbolti

Real Madrid er búið að ná Barcelona

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Fabio Capello, landsliðseinvaldur Englands, segir í samtali við La Gazzetta dello Sport að Real Madrid sé aftur á pari við Barcelona.

„Fyrir ekki svo löngu var Barcelona besta liðið en ekki lengur. Madrid er með afar sterkt lið. Sumir efuðust um Manuel Pellegrini sem þjálfara en hann er góður og veit hvað hann er að gera. Hafið þið séð hvernig liðið spilar?" sagði Capello sem  þjálfaði Madridarliðið í tvígang.

Capello hrósaði einnig Pep Guardiola, þjálfara Barcelona, í hástert og sagði hann koma með hugmyndir, kraft og gæði í Barcelona-liðið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×