Fótbolti

Betra að berjast hjá Real en spila með Tottenham

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Ruud Van Nistelrooy.
Ruud Van Nistelrooy. Nordic Photos/AFP

Hollendingurinn Ruud Van Nistelrooy er augljóslega ekkert mjög hrifinn af þeirri hugmynd að spila fótbolta með Tottenham Hotspur.

Framherjinn sterki hefur verið þráfaldlega orðaður við Lundúnaliðið síðustu daga en hann hefur engan áhuga á að fara þangað.

„Ég er meiddur svo ég veit ekki hvað Real Madrid vill gera með mig. Ég er ánægður hjá félaginu þannig að ég vil endilega fá tækifæri til þess að berjast fyrir sæti mínu hjá liðinu," sagði Nistelrooy.

„Ég hef mikla löngun til þess að standa mig með Real og tel mig hafa mikið að gefa til félagsins."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×