Sport

Stólum kastað í NHL-deildinni

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Slagsmál í leik Anaheim og Detroit.
Slagsmál í leik Anaheim og Detroit. Nordic Photos/Getty Images

Lögreglan í Detroit segir að kona hafi fengið stól í sig í lok leiks Detroit Red Wings og Anaheim Ducks í NHL-deildinni.

Það var Bob Murray, stjórnarformaður Anaheim, sem kastaði stólnum í bræðiskasti eftir að lið hans hafði tapað oddaleik gegn Red Wings í úrslitakeppninni.

Murray bað konuna afsökunar og merkilegt nokk þá ákvað hún ekki að kæra atvikið. Murray sagði sjálfur að um algert slys hafi verið að ræða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×