Fótbolti

Betis-menn fordæma eggjakast

Betis hefur ekki gengið vel að undanförnu
Betis hefur ekki gengið vel að undanförnu Nordic Photos/Getty Images

Forráðamenn Real Betis á Spáni hafa fordæmt hegðun stuðningsmanna liðsins í gær þegar þeir köstuðu eggjum að leikmönnum liðsins eftir æfingu í gær.

Þetta gerðu æstir stuðningsmennirnir til að lýsa yfir óánægju sinni með leik liðsins undanfarið, en Betis er komið í bullandi fallhættu eftir fjögur töp í röð og er nú aðeins þremur stigum frá fallsæti þegar þrjár umferðir eru eftir.

"Það eru til margar leiðir til að lýsa yfir óánægju sinni, en ofbeldi er ekki ein þeirra. Við ættum heldur að einbeita okkur að því að standa saman," sagði í yfirlýsingu á heimasíðu félagsins í dag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×