Íslenski boltinn

Katrín Ómarsdóttir með KR í kvöld

Ómar Þorgeirsson skrifar
Katrín Jónsdóttir og Katrín Ómarsdóttir.
Katrín Jónsdóttir og Katrín Ómarsdóttir.

Landsliðskonan Katrín Ómarsdóttir leikur með KR í kvöld þegar Vesturbæjarfélagið mætir ÍR á ÍR-vellinum í Pepsi-deild kvenna.

Katrín hefur verið við nám í Bandaríkjunum í vetur og endurkoma hennar til KR er gríðarlegur liðsstyrkur en félagið hefur farið heldur rólega af stað í sumar og unnið aðeins einn leik og gert eitt jafntefli í fyrstu sex leikjunum.

Katrín hefur leikið með meistaraflokki KR frá árinu 2001 og hefur skorað 46 mörk í 132 leikjum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×