Fótbolti

Atletico Madrid segir Heitinga ekki vera á förum

Ómar Þorgeirsson skrifar
Johnny Heitinga í leik gegn Real Madrid.
Johnny Heitinga í leik gegn Real Madrid. Nordic photos/AFP

Forráðamenn spænska félagsins Atletico Madrid hafa tekið fyrir það að varnarmaðurinn Johnny Heitinga sé á förum frá félaginu en spænskir fjölmiðlar greindu frá því í dag að Everton væri búið að leggja fram kauptilboð í landsliðsmanninn hollenska.

Heitinga kom til Atletico Madrid frá Ajax síðasta sumar á 10 milljónir evra og er með samning við spænska félagið til ársins 2013.

„Atletico Madrid er ekki að leitast eftir því að selja Heitinga. Bara svo það mál sé á hreinu. Þessu utan hefur félaginu hvort sem er ekki borist neitt kauptilboð í leikmanninn," er haft eftir talsmanni Atletico Madrid í spænskum fjölmiðlum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×