Fótbolti

Barcelona vann Getafe

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Leikmenn Barcelona fagna sigrinum í kvöld.
Leikmenn Barcelona fagna sigrinum í kvöld. Nordic Photos / AFP
Barcelona vann í kvöld 1-0 sigur á Getafe á útivelli í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.

Markið skoraði Lionel Messi á nítjándu mínútu leiksins. Hann kom svo knettinum öðru sinni í netið í síðari hálfleik en það mark var dæmt af vegna rangstöðu.

Eiður Smári Guðjohnsen sat allan leikinn á varamannabekk Barcelona.

Börsungar eru nú með tólf stiga forystu á Real Madrid á toppi deildarinnar en Real Madrid á reyndar einn leik til góða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×