Tónlist

Fengu Kraums-verðlaunin

Kraums-verðlaunin voru afhent í annað sinn gær við hátíðlega athöfn. Hér stilla verðlaunahafarnir sér upp saman.
Kraums-verðlaunin voru afhent í annað sinn gær við hátíðlega athöfn. Hér stilla verðlaunahafarnir sér upp saman. fréttablaðið/anton

Sex flytjendur fengu Kraumsverðlaunin afhent í gær. Meðal þeirra voru hljómsveitirnar Bloodgroup og Hjaltalín.

Um er að ræða sérstaka viðurkenningu Kraums-tónlistarsjóðs til þeirra verka sem hafa þótt framúrskarandi, frumleg og spennandi í íslenskri plötuútgáfu á árinu. Kraumur mun styðja við sigurplöturnar og jafnframt auka við möguleika flytjendanna á að koma þeim á framfæri utan landsteinana með því að kaupa ákveðinn fjölda af plötunum og dreifa til ýmissa starfsmanna tónlistarbransans erlendis.

Dómnefnd Kraumslistans er skipuð sextán aðilum sem hafa síðustu ár starfað við umfjöllun og spilun á íslenskri tónlist á ýmsum sviðum fjölmiðlunar. Formaður dómnefndar er Árni Matthíasson blaðamaður.

Tuttugu plötur voru tilnefndar til Kraums-verðlaunanna í ár. Á meðal hljómsveita og tónlistarmanna sem hlutu ekki náð fyrir augum dómnefndarinnar í þetta sinn eru Dikta, Egill Sæbjörnsson, múm og Feldberg. Á síðasta ári sigruðu plötur Agent Fresco, FM Belfast, Huga Guðmundssonar, Ísafoldar, Mammút og Retro Stefson.

Sigurvegarar:

Anna Guðný Guðmundsdóttir - Tuttugu tillit til Jesúbarnsins

Bloodgroup - Dry Land

Helgi Hrafn Jónsson - For the Rest of My Childhood

Hildur Guðnadóttir - Without Sinking

Hjaltalín - Terminal

Morðingjarnir - Flóttinn mikli

Það var margt um manninn þegar Kraums-verðlaunin voru afhent í gær.
.
Haraldur Leví Gunnarsson hjá Records Records-útgáfunni var á meðal gesta.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.