Fótbolti

Guti orðaður við Inter

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Eftir að hafa leikið allan sinn feril með Real Madrid er hinn 33 ára gamli Guti til í að pakka saman og fara með fótboltaskóna sína eitthvað annað.

Guti hefur afar fá tækifæri fengið síðan Manuel Pellegrini tók við liðinu og hann er búinn að fá nóg af því að horfa á fótbolta.

Talið er að Guti vilji fara til Inter á Ítalíu og hafa einhverjir fjölmiðlar greint frá því að hann hafi hringt í Wesley Sneijder, fyrrum félaga sinn hjá Real og núverandi leikmann Inter, og beðið hann um að nefna nafn sitt við forseta Inter, Massimo Moratti.

Það er svo allt annað mál hvort Jose Mourinho hafi áhuga á miðjumanninum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×