Sport

Meistarinn úr leik vegna meiðsla

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Roddick og Djokovic ræðast við í leiknum við í nótt.
Roddick og Djokovic ræðast við í leiknum við í nótt. Nordic Photos / Getty Images
Serbinn Novak Djokovic þurfti að hætta í miðri viðureign sinni gegn Andy Roddick frá Bandaríkjunum í fjórðungsúrslitum opna ástralska meistaramótsins í tennis í nótt.

Þar með er meistari síðasta árs úr leik en Roddick er nú kominn í undanúrslit mótsins. Hann hafði yfirhöndina í viðureigninni og hafði unnið tvö sett gegn einu.

Djokovic vann fyrsta settið, 7-6, en Roddick þau tvö næstu, 6-4 og 6-2. Staðan í fjórða settinu var 2-1 þegar að Djokovic hætti.

Djokovic átti erfitt uppdráttar í viðureigninni vegna meiðslanna og þurfti að taka leikhlé í þriðja settinu til að gera að meiðslum sínum. En á endanum varð hann að játa sig sigraðan.

Roddick mætir í undanúrslitunum sigurvegaranum úr viðureign Roger Federer og Juan Martin del Potro sem fer fram síðar í dag.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×