Íslenski boltinn

Pepsi-deild kvenna hefst í dag

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Valur vann KR í úrslitum Reykjavíkurmótsins í vetur.
Valur vann KR í úrslitum Reykjavíkurmótsins í vetur. Mynd/Stefán
Í dag hefst keppni í efstu deild kvenna í knattspyrnu, Pepsi-deildinni, með heilli umferð.

Leikirnir hefjast allir klukkan 14.00 og þeirra á meðal afar athyglisverðir leikir.

Bikarmeistarar KR taka á móti Íslandsmeisturum Vals á KR-vellinum. KR-ingar hafa misst marga leikmenn frá síðasta tímabili og var ekki spáð nema 5. sæti af fyrirliðum og þjálfurum liða í deildinni. Því var hins vegar spáð að Valur myndi verja Íslandsmeistaratitilinn.

Liðunum sem var spáð öðru og þriðja sæti, Breiðabliki og Þór/KA, mætast svo í Kópavoginum í dag.

Leikir dagsins:

Keflavík - Fylkir

Breiðablik - Þór/KA

KR - Valur

Afturelding/Fjölnir - Stjarnan

ÍR - GRV




Fleiri fréttir

Sjá meira


×