Fótbolti

Real Madrid tapaði fyrir Valencia

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ruben Baraja fagnar marki sínu í kvöld.
Ruben Baraja fagnar marki sínu í kvöld. Nordic Photos / AFP
Nú er ljóst að Barcelona getur tryggt sér spænska meistaratitilinn með sigri á Villarreal á morgun þar sem að Real Madrid tapaði fyrir Valencia á útivelli, 3-0, í kvöld.

Þeir Juan Mata, David Silva og Ruben Baraja skoruðu mörk Valencia í kvöld en Real Madrid hefur nú tapað tveimur leikjum í röð. Liðið tapaði fyrir Barcelona á heimavelli um síðustu helgi, 6-2.

Fyrr í dag voru tveir aðrir leikir í spænsku úrvalsdeildinni. Athletic Bilbao vann 1-0 sigur á Real Beits og Sevilla vann Real Mallorca, 3-1.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×