Fótbolti

Barcelona ætlar að kaupa Suarez í janúar

Ómar Þorgeirsson skrifar
Luis Suarez.
Luis Suarez. Nordic photos/AFP

Spænskir fjölmiðlar greindu frá því í dag að Meistaradeildarmeistarar Barcelona hafi hug á því að styrkja framlínu sína þegar félagaskiptaglugginn opnar í janúar.

Knattspyrnustjórinn Pep Guardiola mun þegar vera búinn að finna rétta manninn og það ku vera Luis Suarez leikmaður Ajax og landsliðs Úrúgvæ.

Hinn 22 ára gamli Suarez hefur farið á kostum með Ajax síðan hann kom til félagsins á 7,5 milljónir evra árið 2007 og skorað 49 mörk í 71 leik fyrir félagið.

Sú staðreynd að leikmaðurinn yrði löglegur í Meistaradeildinni þykir auka líkurnar á því að af kaupunum verði strax í janúar frekar en næsta sumar en Börsungar þurfa eflaust að greiða í það minnsta tvöfalt kaupverð kappans frá árinu 2007.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×