Sport

Verður Super Bowl í London?

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Big Ben gæti spilað í Super Bowl í London.
Big Ben gæti spilað í Super Bowl í London. Nordic Photos/Getty Images

Forráðamenn NFL-deildarinnar hafa verið í viðræðum við menn í London upp á síðkastið varðandi þann möguleika að vera með sjálfan Super Bowl-leikinn í Lundúnum.

NFL-leikir hafa farið fram síðustu tvö ár í London og hefur það verkefni heppnast afar vel. Í kjölfar þess hafa báðir aðilar skoðað þennan möguleika af fullri alvöru.

Ef London fengi leik yrði borgin samt að bíða í nokkur ár enda er búið að ákveða hvar leikirnir eiga að fara fram næstu árin.

Næst fer hann fram í Miami, svo Dallas og loks í Indiana.

Leikirnir í London vöktu heimsathygli og London græddi einnig gríðarlega á öllum þeim sirkus sem fylgdi leikjunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×