Íslenski boltinn

Þrír leikir í Pepsi-deild kvenna í kvöld

Ómar Þorgeirsson skrifar
Frá leik Stjörnunnar og Breiðabliks síðasta sumar.
Frá leik Stjörnunnar og Breiðabliks síðasta sumar. Mynd/Arnþór

Stjörnustúlkur geta skotist upp að hlið Vals og Breiðabliks á topp Pepsi-deildar kvenna í kvöld þegar þær heimsækja KR á KR-völlinn.

Stjarnan vann fyrri leik liðanna í Garðabæ en Bikarmeisturum KR hefur gengið brösuglega framan af sumri.

Þá mætast ÍR og Þór/KA á ÍR-velli og Fylkir heimsækir GRV til Grindavíkur.

Allir leikir kvöldsins hefjast kl. 19.15.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×