Fótbolti

Robben byrjaði með látum hjá Bayern

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Robben fagnar öðru marka sinna í kvöld.
Robben fagnar öðru marka sinna í kvöld.

Hollendingurinn Arjen Robben sló heldur betur í gegn í fyrsta leik sínum með FC Bayern í kvöld.

Bayern tók þá á móti Wolfsburg og vann öruggan 3-0 sigur. Robben kom af bekknum í leikhléi og skoraði tvö af mörkum Bayern í leiknum.

Mario Gomez skoraði fyrsta markið.

Varamannabekkur Bayern í kvöld var annars ekkert slor því þar voru ásamt Robben þeir Franck Ribery og Miroslav Klose.

Bayern er í sjöunda sæti deildarinnar eftir sigur dagsins. Bayer Leverkusen er á toppnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×