Boston tapaði í Utah 20. febrúar 2009 09:15 Paul Pierce og félagar töpuðu í Salt Lake City AP
Tveir leikir fóru fram í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Utah vann góðan sigur á meisturum Boston á heimavelli sínum 90-85. Boston missti Kevin Garnett meiddan af velli undir lok fyrri hálfleiks og kom hann ekki meira við sögu í leiknum. Ekki er talið að hnémeiðsli hans séu alvarleg, en tíðinda er að vænta af því fljótlega. Boston náði mest ellefu stiga forystu í þriðja leikhlutanum en missti heimamenn fram úr sér í fjórða leikhlutanum sem Utah vann 30-19. Boston gerði sér erfitt fyrir með lélegri vítanýtingu og töpuðum boltum. Paul Pierce var stigahæstur hjá Boston með 20 stig en hitti aðeins 2 af 9 skotum sínum í fjórða leikhlutanum. Mehmet Okur skoraði 19 stig fyrir Utah og Deron Williams 18 stig og 10 stoðsendingar. Læra ekki að meta hann fyrr en hann hættir San Antonio og Detroit, liðin sem áttust við í lokaúrslitum árið 2005, mættust í Detroit og þar höfðu gestirnir í San Antonio betur 83-79. Tony Parker skoraði 19 stig og gaf 11 stoðsendingar fyrir San Antonio og Tim Duncan var með 18 stig og 18 fráköst. Allen Iverson skoraði 31 stig fyrir Detroit, sem hefur tapað fimm leikjum í röð og 14 af síðustu 19. Michael Curry þjálfari Detroit hafði þetta um Tim Duncan að segja eftir leikinn. "Það segir sína sögu um Duncan að manni finnst hann ekki hafa átt sérstakan leik þegar hann skorar 18 stig og hirðir 18 fráköst. Fólk á ekki eftir að gera sér grein fryir því hve stórkostlegur leikmaður hann er fyrr en hann hættir," sagði þjálfarinn. Gregg Popovich þjálfari San Antonio staðfesti eftir leikinn að Manu Ginobili ætti eftir að missa úr 2-3 vikur vegna ökklameiðsla sem eru að hrjá hann.
NBA Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport Veðmál systkina til lykta leitt: „Veit að ég mun aldrei tapa fyrir honum“ Sport Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Bað börnin sín afsökunar á dánarbeðinum Fótbolti Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed Enski boltinn UEFA sé að missa þolinmæðina gagnvart Íslandi Íslenski boltinn „Hún reif í mig og hraunaði yfir mig, á Marilegan hátt“ Sport Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Segir að Rashford hafi tekið lífsstílinn í gegn Enski boltinn Ferguson saknar fótboltans Enski boltinn Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira