Fótbolti

Garay tryggði Real mikilvæg þrjú stig

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Úr leik liðanna í kvöld.
Úr leik liðanna í kvöld.

Real Madrid minnkaði forskot Barcelona á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar niður í fimm stig í kvöld er liðið lagði Valencia að velli, 2-3.

Það var hinn 23 ára gamli Argentínumaður, Ezequiel Garay, sem tryggði Real öll stigin með marki sjö mínútum fyrir leikslok.

Gonzalo Higuain skoraði hin mörk Real en þeir David Villa og Joaquin skoruðu mörk Valencia.

Real er eins og áður segir fimm stigum á eftir Barcelona en á leik til góða.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×