Sport

Venus Williams féll óvænt úr leik

Venus Williams
Venus Williams AFP

Bandaríska tenniskonan Venus Williams féll óvænt úr leik á opna ástralska meistaramótinu í tennis þegar hún tapaði fyrir lítt þekktri spænskri stúlku, Carla Suarez Navarro.

Spænska stúlkan var að keppa á sínu fjórða stórmóti sigraði 2-6, 6-3 og 7-5. Hún er fjörutíu sætum fyrir neðan Williams á heimslistanum.

Serena Williams, systir Venus, gerði heldur betur og er komin áfram í þriðju umferð ásamt rússnesku stúlkunni Elenu Dementievu.

Í karlaflokki vann Skotinn Andy Murray auðveldan sigur á Spánverjanum Marcel Granollers í þremur settum, 6-4, 6-2 og 6-2. Murray mætir Austurríkismanninum Jurgen Melzer á laugardag.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×