Fótbolti

Paris viðurkennir að hafa pantað seiðkarlinn Pepe

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Cristiano Ronaldo.
Cristiano Ronaldo.

Furðulegasta fréttamáli í áraraðir er ekki lokið. Paris Hilton hefur nú viðurkennt að seiðkarlinn Pepe sé á sínum snærum. Seiðkarlinn segist hafa lagt álögur á Cristiano Ronaldo sem sé ástæðan fyrir því að hann sé meiddur.

„Ég þoli ekki fólk sem er vont. Ég vil líka fá alvöru mann, ekki einhvern sem hleypur um eins og smástelpa. Ronaldo er bara ræfill," á Hilton að hafa sagt við slúðurritið Life & Style.

Pepe ætlar ekki að láta þar við sitja heldur stefnir hann á að ganga frá ferli Ronaldo. Hann á vúdú-dúkku af Ronaldo og hefur hótað að stinga í mænuna á dúkkunni. Að hans mati mun það gera út af við Ronaldo.

Portúgalski knattspyrnumaðurinn hefur svarað þessum árásum því seiðkarlinn Fafa hefur gert sitt til að mæta þessum árásum Pepes.

„Ég er búinn að kveikja á kertum við hlið myndar af Ronaldo og það ætti að sjá til þess að allt verði í lagi," sagði Fafa.

Vísir bíður spenntur eftir næstu skrefum í þessu áhugaverða máli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×