Fótbolti

El Clasico verður í beinni í 51 bíóhúsi á Spáni

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Mynd/AFP
Það er mikill áhugi á Spáni fyrir El Clasico leik Barcelona og Real Madrid á sunnudaginn enda liðin í efstu sætum deildarinnar og uppfull af mörgum af bestu knattspyrnumönnum heims.

Bíóeigendur út allan Spán hafa nú brugðist við þessum mikla áhuga með því að sýna leikinn hjá sér. Leikurinn verður sýndur í 51 bíósal allt frá La Coruna á Norður-Spáni til Almeria á Suður-Spáni Það geta því um 1600 manns séð leikinn á stóru tjaldi og með besta hugsanlega hljóðkerfi.

Það er örugglega mikil upplifun fyrir bíógesti að horfa á þennan frábæra knattspyrnuleik þó að það skáki því nú ekki að vera meðal tæplega hundrað þúsund áhorfenda á Nývangi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×