Fótbolti

Ekki víst að Sneijder fari til Inter

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Nordic Photos/AFP

Fyrr í dag benti allt til þess að hollenski landsliðsmaðurinn Wesley Sneijder væri á leið frá Real Madrid til ítalska félagsins Inter.

Þá var talið að Real og Inter hefðu náð samkomulagi um kaupverðið og aðeins vantaði samþykki frá leikmanninum til þess að ganga frá sölunni.

Hlutirnir hafa gerst hratt í dag og spænskir fjölmiðlar greina frá því í kvöld að Sneijder sé einnig að íhuga tilboð frá Man. Utd og FC Bayern.

Talið er að Real vilji þess utan fá meira en þær 15 milljónir evra sem Inter er tilbúið að greiða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×