Fótbolti

Higuain með tvennu í mikilvægum sigri Real Madrid

Ómar Þorgeirsson skrifar
Gonzalo Higuain fangar öðru marka sinna á Santiago Bernabeu í kvöld.
Gonzalo Higuain fangar öðru marka sinna á Santiago Bernabeu í kvöld. Nordic photos/AFP

Real Madrid náði að rétta úr kútnum eftir afleitt gengi undanfarið með 2-0 sigri gegn Getafa í spænsku úrvalsdeildinni en Argentínumaðurinn Gonzalo Higuain skoraði bæði mörk liðsins.

Útlitið var ekki gott lengi framan af fyrir Real Madrid á Santiago Bernabeu-leikvanginum í kvöld því eftir tæplega hálftíma leik fékk Raul Albiol að líta beint rautt spjald fyrir gróft brot en staðan í hálfleik var markalaus.

Í upphafi síðari hálfleiks fóru hlutirnir hins vegar að gerast og á 53. mínútu opnaði Higuain markareikninginn fyrir heimamenn eftir góðan undirbúning Marcelo.

Higuain var svo aftur á ferðinni skömmu síðar þegar hann skoraði eftir hraða sókn Madridinga en hann fékk þá sendingu frá Karim Benzema.

Ljóst er að úrslitin verða til þess að taka hitann að einvherju leyti af knattspyrnustjóranum Manuel Pellegrini eftir slakt gengi undanfarið.

Spænskir fjölmiðlar vilja þó meina að leikur Real Madrid gegn AC Milan á þriðjudag geti ráðið úrslitum um framtíð Pellegrini í starfi. Fari svo að sá leikur tapist verður knattspyrnustjórinn mjög líklega látinn fjúka samkvæmt spænskum fjölmiðlum.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×