Körfubolti

Portland vildi líka fá Shaq

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Shaquille O´Neal.
Shaquille O´Neal. Nordic Photos/AFP

Nýjasti liðsmaður Cleveland Cavaliers, Shaquille O´Neal, segir að Portland Trailblazers hafi einnig reynt að fá hann til sín.

O´Neal segist hafa rætt málið við Steve Kerr, framkvæmdastjóra Phoenix, og vinsamlegast beðið hann um að láta sig ekki fara til Portland þar sem félagið væri ekki líklegt til að vinna titla.

Forráðamenn Portland neita því að þeir hafi haft áhuga á Shaq og segjast ekkert hafa með hann að gera á meðan félagið hafi Greg Oden.

Shaq er annars hæstánægður með vistaskiptin og þakkaði Kerr sérstaklega fyrir heiðarleg samskipti.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×