Íslenski boltinn

Pepsi-deild kvenna: Valsstúlkur lögðu Aftureldingu/Fjölni

Ómar Þorgeirsson skrifar
Rakel Logadóttir.
Rakel Logadóttir. Mynd/Valli

Íslandsmeistarar Vals unnu Aftureldingu/Fjölni örugglega 4-2 á Vodafonevellinum í kvöld.

Staðan var 2-0 í hálfleik en Rakel Logadóttir skoraði bæði mörkin.

Katrín Jónsdóttir kom Val í 3-0 í upphafi seinni hálfleiks og Dóra María Lárusdóttir bætti við fjórða markinu á 65. mínútu.

Sigríður Þóra Birgisdóttir minnkaði muninn fyrir gestina á 67. mínútu og bætti svo við öðru marki sínu í uppbótartíma og lokatölur því 4-2.

Valsstúlkur eru því sem fyrr í toppsæti deildarinnar.

Nánari umfjöllun um leikinn og viðtöl birtast hér á Vísi seinna í kvöld.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×