Fótbolti

Zidane: Ronaldo er einstakur

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Zinedine Zidane, fyrrum leikmaður Real Madrid, var mættur á leik Marseille og Real Madrid í gær. Hann hreifst mjög af gamla liðinu sínu og þá sérstaklega af Cristiano Ronaldo.

Frakkinn segir að Real geti vel farið alla leið í keppninni og að Ronaldo sé talsvert betri en hann var.

„Ég hef notið þess að horfa á Madrid upp á síðkastið. Leikmennirnir eru frábærir og þeir eru farnir að spila meira eins og lið núna. Það er afar mikilvægt og liðið á eftir að verða betra," sagði Zidane.

„Cristiano er ekki bara góður, hann er einstakur. Hann gerir betri og flottari hluti en ég gerði," sagði Zidane auðmjúkur en Ronaldo skoraði tvö mörk í leiknum í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×