Fótbolti

Sigur hjá Barcelona

Pedro fagnar marki sínu í kvöld.
Pedro fagnar marki sínu í kvöld. Nordic Photos / AFP

Barcelona vann í kvöld 2-1 sigur á Athletic Bilbao í fyrri leik liðanna um spænska Ofurbikarinn.

De Marcos kom Athletic yfir með marki undir lok fyrri hálfleiksins en Börsungar spiluðu betur í þeim síðari og uppskáru sigurinn með mörkum frá Xavi og Pedro.

Eiður Smári Guðjohnsen var á varamannabekk Barcelona í kvöld og kom ekki við sögu í leiknum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×