Fótbolti

Drogba nýjasta beitan í forsetakosningum Real Madrid

Forsetaframbjóðendurnir hjá Real Madrid halda áfram að nota bestu knattspyrnumenn Englands sem beitu þegar þeir veiða sér atkvæði fyrir komandi kosningar.

Einn þeirra, Eduardo Garcia, hefur nú lofað að kaupa Didier Drogba frá Chelsea ef hann kemst til valda hjá félaginu.

Talið er víst að hinn skrautlegi Florentino Perez muni ætla sér að ná í einhverja bestu leikmenn heims ef hann kemst til valda, en hann hefur reyndar enn ekki gefið formlega kost á sér.

Það breytir því ekki að spænsku blöðin eru dugleg að geta sér til um hvaða leikmenn hann ætli að kaupa ef hann kemst til valda og þeir Cristiano Ronaldo og Kaka hafa verið nefndir í því sambandi.

"Við erum búnir að ná samkomulagi við þrjá leikmenn," sagði Garcia hróðugur í samtali við AS.

"Einn þeirra er framherji á Englandi sem skorar mikið af mörkum. Við ætlum okkur stóra hluti þegar við erum komnir með menn eins og Didier Drogba í okkar raðir," sagði Garcia.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×