Fótbolti

Nistelrooy ætlar að berjast fyrir sæti sínu

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Ruud Van Nistelrooy er ekkert að fara á taugum yfir stöðu sinni hjá Real Madrid þar sem hann er fallinn aftarlega í goggunarröðinni. Hann ætlar að berjast áfram fyrir sínu.

„Ég er hér enn því ég vil vinna titla með þessu félagi. Miðað við það sem gerðist í bikarnum þá þurfa allir að bæta sig. Það er ljóst. Ég er samt ekki vitlaus og veit alveg hvernig staðan er. Ég ætla samt ekki að gefast upp," sagði Hollendingurinn.

„Ég mun gefa allt sem ég á til þess að komast í liðið. Ef það dugar ekki til þá sjáum við hvað gerist næsta sumar."

Þrátt fyrir öll sín meiðsli þá hefur Van Nistelrooy skorað 46 mörk í 68 leikjum fyrir Real Madrid.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×