Íslenski boltinn

Embla Grétarsdóttir í Val

Embla á að baki tíu landsleiki
Embla á að baki tíu landsleiki Mynd/Anton

Embla Grétarsdóttir hefur ákveðið að ganga í raðir Vals eftir því sem fram kemur á heimasíðu KR og leikur því í rauðu í sumar.

Embla hefur verið í herbúðum KR í rúman áratug og á að baki 241 leik hjá félaginu.

Í samtali við Vísi á dögunum sagði Embla að valið stæði á milli Vals og Breiðabliks en hún hefur nú ákveðið að ganga í raðir Íslandsmeistaranna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×