Fótbolti

Messi útilokar ekki að spila gegn Inter

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Lionel Messi fagnar marki í leik með Barcelona.
Lionel Messi fagnar marki í leik með Barcelona. Nordic Photos / AFP

Lionel Messi þykir tæpur fyrir leik Barcelona og Inter í vikunni en hann sagði þó að Barcelona myndi vinna leikinn, með eða án hans.

Messi meiddist í nára í leik Barcelona gegn Athletic Bilbao um helgina en meiðslin eru þó ekki jafn alvarleg og óttast var. Leikurinn við Inter er á morgun og óvíst hvort Messi verði orðinn klár í slaginn í tæka tíð.

„Það er vissulega óheppilegt þegar svona lagað gerist sérstaklega þar sem mig dreymir um að taka þátt í stórleikjum eins og þessum. En við munum vinna hvort sem ég verð með eða ekki," sagði Messi í samtali við spænska fjölmiðla.

„Það skiptir engu gegn hverjum við erum að spila. Við megum ekki gleyma því að við erum Barca og við erum með frábært lið."










Fleiri fréttir

Sjá meira


×