Fótbolti

Eiður byrjaði í sigri Barcelona

Thierry Henry og félagar unnu fimmta leikinn í röð í kvöld
Thierry Henry og félagar unnu fimmta leikinn í röð í kvöld AFP

Eiður Smári Guðjohnsen var í byrjunarliði Barcelona í kvöld þegar liðið vann fyrirhafnarlítinn 2-0 sigur á Recreativo í spænsku deildinni í knattspyrnu.

Andres Iniesta kom Barcelona í 1-0 eftir innan við mínútu og sjálfsmark frá Nasief Morris tryggði heimamönnum fimmta sigurinn í röð.

Eiður Smári Guðjohnsen var í byrjunarliði Barcelona en var skipt af velli eftir rúmlega klukkutíma leik fyrir Xavi. Leo Messi klikkaði á vítaspyrnu þegar um tíu mínútur voru til leiksloka.

Barcelona hefur nú níu stiga forskot á Real Madrid sem á leik til góða gegn Valladolid á heimavelli á morgun.

Sevilla er níu stigum á eftir Real í þriðja sætinu og liðið tekur á móti Getafe á morgun og Villarreal er svo níu stigum þar fyrir neðan í töflunni í fjórða sætinu. Liðið mætir Malaga á morgun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×