Fótbolti

Ronaldo með tvennu í stórsigri Real Madrid

Ómar Þorgeirsson skrifar
Ronaldo getur ekki hætt að skora fyrir Real Madrid.
Ronaldo getur ekki hætt að skora fyrir Real Madrid. Nordic photos/AFP

Cristiano Ronaldo var enn og aftur á skotskónum þegar Real Madrid vann 5-0 sigur gegn Xerez í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld.

Ronaldo kom Madridingum á bragðið strax á fyrstu mínútu leiksins en biðin var nokkuð löng eftir næsta marki sem Ronaldo skoraði einnig þegar um stundarfjórðungur lifði leiks.

Þá opnuðust hins vegar flóðgáttir og Guti, Karim Benzema og Ruud va Nistelrooy skoruðu eitt mark hvor áður en yfir lauk og 5-0 sigur Real Madrid staðreynd.

Úrslit kvöldsins á Spáni:

Real Madrid-Xerez 5-0

1-0 Cristiano Ronaldo (1.), 2-0 Ronaldo (75.), 3-0 Guti (78.), 4-0 Karim Benzema (82.), 5-0 Ruud van Nistelrooy (89.).

Valencia-Sporting Gijon 2-2

Athletic Bilbao-Villarreal 3-2

Deportivo La Coruna-Espanyol 2-3

Real Mallorca-Tenerife 4-0

Malaga-Racing Santander 1-2

Almeria-Getafe 1-0

Real Zaragoza-Real Valladolid 1-2









Fleiri fréttir

Sjá meira


×