Fótbolti

Guardiola, þjálfari Barcelona: Við vorum í vandræðum með Xerez

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Pep Guardiola, þjálfari Barcelona var ekki ánægður með sitt lið í gær.
Pep Guardiola, þjálfari Barcelona var ekki ánægður með sitt lið í gær. Mynd/AFP
Pep Guardiola, þjálfari Barcelona, viðurkenndi að liðið sitt hafi verið langt frá sínu besta á móti fallbaráttuliði Xerez í spænsku úrvalsdeildinni í gær. Barcelona vann leikinn 2-0 með marki frá Thierry Henry í upphafi seinni hálfleiks og marki frá Zlatan Ibrahimovic í uppbótartíma.

„Síðustu leikir hafa tekið mikið frá okkur. Það er eðlilegt því við vorum að spila stóra og mikilvæga stress-leiki. Ég ákvað því að breyta liðinu og koma með ferskar fætur inn í liðið. Við vorum ekki öruggir með stigin þrjú fyrr en í lokin að við bættum við öðru marki. Við vorum í vandræðum með Xerez," sagði Pep Guardiola.

„Ég ber virðingu fyrir öllum mótherjum og varnarlína Xerez-liðsins var að spila vel. Það var ekkert flæði í okkar leik og við vorum alltof hægir í þessum leik," sagði Guardiola o bætti við:

„Liðið spilar nokkra svona leiki á hverju tímabili en ég get lofað því að liðið mun spila betur á laugardaginn," sagði Pep Guardiola en Barcelona mætir þá Deportivo La Coruna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×