Fótbolti

Ramos stakk af til að horfa á nautaat

Ramos skellti sér á nautaat
Ramos skellti sér á nautaat AFP

Varnarmaðurinn Sergio Ramos hjá Real Madrid hefur haldið blaðamannafund þar sem hann baðst afsökunar á því að hafa stungið af snemma frá leik liðsins gegn Valladolid á sunnudaginn til að horfa á vin sinn keppa í nautaati.

Ramos var í leikbanni í leiknum, sem Real vann 2-0, en spænskir fjölmiðlar náðu myndum af honum á meðal áhorfenda á nautaatinu. Myndirnar vöktu hörð viðbrögð og því kallaði spænski landsliðsmaðurinn til blaðamannafundar.

"Ég biðst afsökunar á þessu og ef félagið ákveður að refsa mér fyrir þetta, mun ég taka því. Ég er samt gramur yfir þessu, því enginn getur dregið hollustu mína við félagið í efa," sagði Ramos.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×