Fótbolti

Real Madrid rétt marði Alcorcon og féll úr keppni

Ómar Þorgeirsson skrifar
Frá leik Real Madrid og Alcorcon á Bernabeu-leikvanginum í kvöld.
Frá leik Real Madrid og Alcorcon á Bernabeu-leikvanginum í kvöld. Nordic photos/AFP

Real Madrid tjaldaði öllu til í seinni leiknum gegn spænska c-deildarfélaginu Alcorcon í 32-liða úrslitum spænska konungsbikarnum enda þurfti stórliðið að vinna upp 4-0 forystu Alcorcon-manna eftir fyrri leikinn.

Knattspyrnustjórinn Manuel Pellegrini hafði heitið því að stilla upp sterku byrjunarliði á Bernabeu-leikvanginum og hann stóð svo sannarlega við það og menn á borð við Kaka, Raúl, Gonzalo Higuaín, Ruud Van Nistelrooy, Pepe og Alvarto Arbeloa byrjuðu inná.

Real Madrid sótti án afláts strax frá fyrsta flauti en gekk illa að koma boltanum í netið. Svo illa reyndar að staðan var enn markalaus þegar hálfleiksflautan gall og stuðningsmenn Real Madrid létu óánægju sína í ljós þegar liðin gengu til búningsherbergja með því að baula á heimamenn.

Heimamenn héldu áfram að pressa stíft að marki gestanna í síðari hálfleik en sóknarþunginn bar ekki árangur fyrr en á 81. mínútu þegar varamaðurinn Rafael Van der Vaart skoraði.

Gestirnir voru nálægt því að gera endanlega út um einvígið stuttu síðar þegar Nagore slapp einn inn fyrir vörn Real Madrid en Jerzy Dudek varði frá honum.

Hvorugu liðinu tókst að skora á lokakaflanum og niðurstaðan því tilþrifalítill 1-0 sigur Real Madrid. Alcorcon náði því að vinna einvígi grannaliðanna samanlagt 4-1 og komst þar með auðveldlega áfram í 5. umferð bikarsins.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×