Fótbolti

Yaya Toure hugsanlega á leið til Englands

Ómar Þorgeirsson skrifar
Yaya Toure.
Yaya Toure. Nordic photos/Getty images

Umboðsmaður miðju -og varnarmannsins Yaya Toure hjá Meistaradeildarmeisturum Barcelona segir að leikmaðurinn sé með tilboð í höndunum frá liðum á Englandi og Ítalíu og segir framtíð hans óljósa.

„Það eru mörg félög sem hafa áhuga á Toure. Hann mun samt ekki fara til Arsenal eins og sögusagnir herma og ekki heldur til Þýskalands. Hann er með mun betri tilboð frá nokkrum liðum á Ítalíu og Englandi," segir Dmitri Seluk.

Toure ítrekaði þó nýlega að hann væri ánægður í herbúðum Barcelona en samkvæmt Seluk þá gætu aðstæður verið að breytast með það.

„Forráðamenn Barcelona hafa ekki staðið við heiðursmannasamkomulag sem við gerðum um kauphækkun fyrir skjólstæðing minn. Það eru vonbrigði og mér finnst Toure ekki njóta þeirrar virðingar sem hann á skilið hjá félaginu," segir Seluk í samtali við spænska fjölmiðla.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×