Fótbolti

Alonso: Real Madrid getur orðið enn betra

Ómar Þorgeirsson skrifar
Leikmenn Real Madrid hafa verið sannfærandi til þessa á yfirstandandi keppnistímabili.
Leikmenn Real Madrid hafa verið sannfærandi til þessa á yfirstandandi keppnistímabili. Nordic photos/AFP

„Hvað varðar úrslit þá getum við ekki beðið um meira en liðið er að bæta sig frá leik til leiks. Við þurfum að halda áfram að bæta okkur og ég er sannfærður um að Real Madrid getur orðið enn betra.

Það verður erfitt en við verðum að hafa trú á því sem við erum að gera," segir miðjumaðurinn Xabi Alonso sem kom til Real Madrid í sumar frá Liverpool. Madridingar hafa unnið alla leiki sína til þessa á tímabilinu.

„Við getum ekki verið fullkomlega sáttir með okkar leik þrátt fyrir úrslitin. Við getum ekki falið okkur á bak við úrslitin. Það koma leikkaflar í leikjum okkar þar sem spilið hefur dottið niður og það þurfum við að laga," segir Alonso í viðtali við opinbera heimasíðu Real Madrid.

Real Madrid fær alvöru próf um helgina þegar liðið mætir Sevilla í spænsku úrvalsdeildinni en útlit er fyrir að Madridingar verði án Portúgalans Cristiano Ronaldo sem hefur farinn mikinn til þessa á tímabilinu en meiddist lítillega í sigurleik gegn Marseille í gær.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×