Fótbolti

Chelsea og Real Madrid bítast um David Villa

Ómar Þorgeirsson skrifar
David Villa.
David Villa. Nordic photos/Getty images

Forráðamenn Chelsea og Real Madrid eru staddir í Valencia þessa stundina þar sem félögin bítast um kaup á framherjanum David Villa.

Samkvæmt heimildum spænskra fjölmiðla þá eru Chelsea sagðir tilbúnir að borga 38 milljónir punda en Real Madrid 24 milljónir punda auk þess að setja framherjann Alvaro Negredo upp í kaupin.

Villa sjálfur er sagður hafa meiri áhuga á að ganga til liðs við Real Madrid en gengið verður væntanlega frá samningum fyrir vikulok.

„Þetta snýst ekki um peninga. Villa hefur aldrei spáð of mikið í peninga. Þetta snýst um að velja rétta félagið fyrir leikmanninn og fyrir Valencia," segir Jose Luis Tamargo umboðsmaður Villa.

Hvorki forráðamenn Chelsea né Real Madrid hafa til þessa viljað staðfesta að félögin hafi lagt fram kauptilboð eða séu í viðræðum við hinn 27 ára framherja sem hefur skorað 87 mörk í 129 leikjum í spænsku deildinni fyrir Valencia og 25 mörk í 43 landsleikjum fyrir Spán.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×