Fótbolti

Barcelona hampaði ofurbikarnum á Spáni

Ómar Þorgeirsson skrifar
Lionel Messi.
Lionel Messi. Nordic photos/AFP

Börsungur sigruðu leikinn um meistara meistaranna á Spáni eftir 3-0 sigur gegn Athletic Bilbao á Nývangi í kvöld í seinni leik liðanna en Barcelona vann fyrri leikinn 1-2.

Lionel Messi skoraði tvö fyrstu mörk leiksins og varamaðurinn Bojan Krkic bætti því þriðja við og þar við sat. Barcelona réði ferðinni frá upphafi leiks til enda þess og mörkin hefðu getað orðið miklu fleiri.

Þetta er í áttunda skipti sem Barcelona vinnur Ofurbikarinn svokallaða.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×