Fótbolti

Laporta opnar dyrnar fyrir Robinho

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Sagan endalausa um það hvort Robinho fari frá Man. City til Barcelona í janúar fékk nýjan meðbyr í dag er Joan Laporta, forseti Barcelona, sagði vel koma til greina að versla í janúar.

„Við ætlum ekki að loka neinum hurðum því ef þjálfararnir vilja bæta við sig ákveðnum mönnum þá er ég viss um að við getum keypt þann leikmann," sagði Laporta.

Forsetinn vildi ekki ræða sérstaklega neina ákveðna leikmenn og kom sér undan í flæmingi þegar blaðamenn spurðu um Robinho.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×