Fótbolti

Hleb valdi á endanum að fara til Stuttgart

Ómar Þorgeirsson skrifar
Alexander Hleb.
Alexander Hleb. Nordic photos/AFP

Hvítrússinn Alexander Hleb er kominn á fornar slóðir því hann gekk í dag til liðs við þýska félagið Stuttgart á árs löngum lánssamningi frá Barcelona.

Hleb lék með Stuttgart áður en hann fór til Arsenal og svo Barcelona. Hleb var upphaflega hluti að leikmannaskiptum á milli Inter og Barcelona sem sáu Zlatan Ibrahimovic og Samuel Eto'o skipta um félög en hann ákvað á síðstu stundu að fara frekar til Stuttgart í stað Inter.

Hinn 28 ára gamli Hleb náði ekki að festa sig í sessi á Nývangi á síðasta tímabili og vonast eflaust til þess að fá meiri spiltíma í Þýskalandi en hann fékk á Spáni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×