Fótbolti

Benzema slapp ómeiddur frá bílslysi

Ómar Þorgeirsson skrifar
Karim Benzema.
Karim Benzema. Nordic photos/AFP

Franski landsliðsframherjinn Karim Benzema hjá Real Madrid slapp ótrúlega vel eftir að hafa klessukeyrt bíl sinn skammt frá heimili sínu síðustu nótt eftir „El Clásico" leikinn gegn Barcelona.

Real Madrid tapaði sem kunnugt er leiknum 1-0 og hinn 21 árs Benzema, sem kom inná sem varamaður í leiknum, náði ekki að sýna sitt rétta andlit og klúðraði einu besta færi gestanna í leiknum.

Audi-bifreið kappans er að sögn dagblaðsins AS gjörsamlega í rúst og því mildi að leikmaðurinn hafi sloppið frá atvikinu eins vel og raun ber vitni um.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×