Fótbolti

Ronaldo: Messi á skilið að vera valinn leikmaður ársins

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Stuðningsmenn Real Madrid eru eflaust ekki yfir sig hrifnir af því að Cristiano Ronaldo sé að lofa Lionel Messi í bak og fyrir þessa dagana.

Ronaldo var auðmjúkur er hann greindi frá því að Messi hefði afrekað meira en hann á síðustu leiktíð og ætti því skilið að vera valinn besti knattspyrnumaður Evrópu.

„Hann hlýtur að vera sigurstranglegastur. Hann vann Meistaradeildina og spænsku deildina. Af hverju ekki hann? Ef hann vinnur þá átti hann það skilið," sagði Ronaldo.

Hann játaði einnig að Barcelona væri betra lið en Real Madrid í dag.

„Barcelona spilar betri fótbolta en Real Madrid í dag. Af hverju? Það er af því að þetta lið hefur verið saman í mörg ár en ekki bara í tvo mánuði eins og við. Barca er betra en við í dag en stóra spurningin er hvort liðið verður betra í lok tímabilsins."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×