Fótbolti

Guti staðfestir að hann vilji fara frá Madrid

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Eftir að hafa leikið allan sinn feril með Real Madrid er komið að kveðjulokum. Hinn 33 ára gamli Guti hefur lýst því yfir að hann ætli sér að komast frá félaginu.

Hann hefur ekki átt upp á pallborðið hjá Manuel Pellegrini þjálfara og sér því ekki lengur framtíð hjá félaginu.

„Ég vil hætta hjá Real Madrid," sagði Guti sem ætlar samt ekki að gefast upp í baráttunni um að komast í liðið.

„Ég er með samning til 2011 og væri alveg til í að klára hann. Ég veit ég þarf að leggja hart að mér til að spila. Ég er samt búinn að ræða við framkvæmdastjórann um framtíð mína. Við áttum gott spjall."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×